Psalms 113

1Halelúja. Þjónar Drottins, lofið, lofið nafn Drottins. 2Nafn Drottins sé blessað héðan í frá og að eilífu. 3Frá sólarupprás til sólarlags sé nafn Drottins vegsamað. 4Drottinn er hafinn yfir allar þjóðir og dýrð hans yfir himnana. 5Hver er sem Drottinn, Guð vor? Hann situr hátt 6og horfir djúpt á himni og á jörðu. 7Hann reisir lítilmagnann úr duftinu, lyftir snauðum upp úr saurnum 8og leiðir hann til sætis hjá tignarmönnum, hjá tignarmönnum þjóðar hans. 9Hann lætur óbyrjuna í húsinu búa í næði sem glaða barnamóður. Halelúja.
Copyright information for Icelandic